Færsluflokkur: Bloggar
6.6.2008 | 12:40
Óréttlátt !!
Mikið var ég vonsvikin þegar dómur hæstaréttar féll í máli móður minnar, Soffíu Jakobsdóttur um eftirlaun frá LR. Þessi dómur svíður sérstaklega sárt þar sem hún eyddi fleiri, fleiri helgum í barnæsku minni við að vinna frítt til að safna fyrir nýju leikhúsi, þ.e.a.s. Borgarleikhúsinu. Þetta gerði hún og fleiri meðlimir leikfélagsins til að félagið gæti eignast leikhús sem rúmað gæti hina miklu starfsemi sem þar er að finna í dag. Því er það sárt að þetta sama félag segi henni upp rétt áður en hún kemst á tilskilinn eftirlauna aldur - til þess eins að þurfa ekki að borga henni eftirlaun! Og svo er félagið búið að selja sinn hlut í húsinu sem hún gaf vinnu sína svo óeigingjart til að byggja!!! uss - þetta er einfaldlega óréttlátt!!
Leikkona fær ekki eftirlaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)